mánudagur, nóvember 28, 2005

Tímaeyðsla?

Ok tvö blogg á einum degi. Ég er greinilega á bólakafi í prófalestri.

En ef ykkur finnst leiðinlegt að læra eins og mér, reynið þá að sjá nafn 72 hljómsveita út úr þessari mynd:



En passið ykkur. Gæti valdið hugarangri miklu.

Sigur Sigur Rósar

Sigur Rósar liðar komu sáu og sigruðu mannfjöldann á stórtónleikum sínum í gær. Ég hef aldrei upplifað annað eins. Það var svo mikill kraftur og fagurleiki í þessu hjá þeim, gaurinn hliðina á mér grét eins og ég veit ekki hvað (ég var nú reyndar ekki alveg í þeim pakkanum þó þeir hafi hrifið mig allsvakalega). Með svaka lúðrasveit sér til halds og trausts og svo auðvitað kvartettinn Aminu. Þær voru flottar líka, skemmtlegast þegar ein þeirra spilað með sög á sellóið sitt.

Nú er bara að vona að sjónvarpið sýni tónleikana í bráð því ég er svo lítil að sá ekki svaka mikið. Mæti á balletskóm næst svo geti staðið á tánum híhí (ekkert sársaukafullt neinei).

sunnudagur, nóvember 27, 2005

Vefverðlaunin

Sko Rjómann! Tilnefndur sem besti afþreyingarvefurinn á vefverðlaununum 2005.

Það er aldeilis.

Svo er það bara Sigur Rós í kvöld. Bara ef ég gæti einbeitt mér að þessari rekstrarfræði þangað til. Kannski í fullkomnum heimi.

miðvikudagur, nóvember 16, 2005

Ekkert niðurhal?

Skemmtileg frétt?

Hvað á ég að gera við tíma minn ef ég má ekki niðurhala? Hmmm kannski læra? Ég fyllist tómleikatilfinningu bara við tilhugsunina.

sunnudagur, nóvember 13, 2005

Langt um liðið

Ég er bara svo andlaus þessa dagana að nenni ekki að blogga (þó ég hangi í tölvunni öllum stundum). Var alla síðustu viku að borga tollinn af skyndiákvörðuninni minni (skrapp til Danmerkur (ákvað það með 8 tíma fyrivara)). En það var stuð að hanga með Sollu og öllum hinum skemmtilegu krökkunum í DK í nokkra daga (og eyða pening (skulum ekki gleyma því)).

Síðustu viku varð ég því að vinna og læra villt og galið til að bæta þetta upp. En best að hætta að kvarta. Hver er sinnar gæfu smiður. Þar sem ég hef ekkert skemmtilegt að segja ætla ég að birta fallegt ljóð sem ég rakst á fyrir stuttu (í sjónvarpsþætti sem ég vil ekki segja ykkur hvað heitir híhí).

Invictus
-William Ernest Henley-
Out of the night that covers me,
Black as the Pit from pole to pole,
I thank whatever gods may be

For myunconquerable soul

In the fell clutch of circumstance
I have not winced nor cried aloud,
Under the bludgeonings of chance
My head is bloody, but unbowed.
 Beyond this place of wrath and tears
Looms but the horror of the shade,
And yet the menace of the years
Finds, and shall find me, unafraid.
It matters not how strait the gate,
How charged with punishments the scroll,

I am the master of my fate:
I am the captain of my soul